Kyrrðardagur í Mosfellskirkju – Íhugun – kyrrð – útivera
Kyrrðardagurinn er haldinn Í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.
Laugardaginn 22. september kl. 10 – 16. Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af sér veturinn og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Umsjón með deginum hafa sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknaefni. Á vef Kjalarnesprófastdæmis ræðir sr. Ragnheiður um kyrrðardaginn,
Allir velkomnir – þátttaka ókeypis. Upplýsingar og skráning: sr. Ragnheiður Jónsdóttir sími 8699882.