Kyrrðarstundir undir yfirskriftinni “Gríptu daginn” – í kyrrð, verða haldnar í Mosfellskirkju á aðventunni. Kyrrðarstundin felst í íhugun, kyrrð og útiveru í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal í Mosfellsbæ.

Kyrrðarstundirnar eru tvær Laugardagana 8. og 15. desember kl. 9-11. Við hefjum stundina í morgunrökkrinu með Kyrrðarbæninni. Göngum síðan út í birtu dagsins og tökum stuttan göngutúr í dalnum. Heitt kakó í lok samveru.

Umsjón: sr.Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknakandídat