selfosskirkja1Námskeið verður haldið um aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) í  Selfosskirkju, Laugardagana 2. og 9. febrúar kl. 10:30 – 13:30   Þátttökugjald á námskeiðið fyrir báða dagana er kr. 2.000,-  Í framhaldi verður boðið upp á sex fræðslukvöld þar sem farið verður dýpra í einstaka þætti sem kenndir voru á námskeiðinu. Kvöldin einkennast af iðkun bænarinnar, fræðslu og umræðum.  Fræðslukvöldin hefjast mánudaginn 11. febrúar kl. 20:00 – 22:00 og þeim lýkur mánudaginn 18. mars á sama tíma, alls sex mánudagar. Þau sem áður hafa sótt námskeið í Kyrrðarbænininni og/eða iðkað hana eru hjartanlega velkomin á fræðslukvöldin sex.

Umsjón er í höndum  Margrétar Guðjónsdóttur, Margretar Scheving og Þorvaldar Halldórssonar. Skráning er í höndum Margretar Scheving í síma 699 5709 eða á netfanginu margretscheving@simnet.is