???????????????????????????????? “Gríptu daginn” –  í kyrrð, Kyrrðardagur verður haldinn í Mosfellskirkju. Í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal. Íhugun – kyrrð – útivera. Laugardaginn 14.september kl.9-16
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama.
Umsjón með deginum hafa Sigurbjörg Þorgrímsdóttir og sr. Ragnheiður Jónsdóttir leiðbeinendur í Kyrrðarbæninni – Centering Prayer.
Allir velkomnir – þátttaka ókeypis. Upplýsingar og skráning: sr. Ragnheiður Jónsdóttir
sími 8699882