MosfellskirkjaKyrrðardagur verður haldinn í Mosfellskirkju og á Mosfelli laugardaginn 31. maí milli kl.9:00 og 13:00. Á kyrrðardeginum verður blandað saman íhugun að hætti kyrrðarbænarinnar og útiveru / fjallgöngu. Kyrrðardagurinn er haldinn í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af sér veturinn og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama.

Kyrrðarbænin verður stunduð í Mosfellskirkju og einnig verður gengið á Mosfell og því gott að vera vel skóaður. Allir velkomnir – þátttaka ókeypis. Nánari upplýsingar gefur sr. Ragnheiður Jónsdóttir í síma 869 9882.