skalholtstort

Yndislegir dagar við íhugun í friði og ró á kyngimögnuðum og fallegum stað.

Samtök Contemplative Outreach á Íslandi bjóða til kyrrðardaga þar sem hugleiðslubænin Kyrrðarbæn“ (Centering prayer) er iðkuð ásamt fræðslu.

Almennt er talið að hugleiðsla og íhugun hafi mjög jákvæð og góð áhrif í hinu daglega lífi.  Í frítíma gefst tími til útiveru og gönguferða. Með öllu þessu nærum við bæði sál og líkama.

Dagskráin er með svipuðu sniði og á kyrrðardögum sem haldnir eru  af samtökum Contemplative Outreach  www.contemplativeoutreach.org  um allan heim.

Umsjónarkonur námskeiðsins eru: Margrét Guðjónsdóttir bókasafnstæknir og heilari,  Ingigerður Konráðsdóttir djáknakandídat og sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn.  Dagskráin hefst sunnudaginn 3. maí kl. 18:00 og henni lýkur laugardaginn 9. maí kl. 11:00.                                                                                                                                               Verðið er kr. 62.400,-. Hægt er að lækka verðið um 1.500,- með því að koma með sín eigin rúmföt.                                                                                                                                          Innifalið í verðinu er einstaklingsherbergi með sér baði og fullu fæði. Sum stéttarfélög taka þátt í kyrrðardögum sem þessum. Hjónaafsláttur. Greiðsludreifing.

Skráning fer fram á vef Skálholts (smellið hér),  í síma 486-8870 (Hólmfríður) eða á netfanginu holmfridur@skalholt.is. Nánari upplýsingar á netfanginu: coiceland@gmail.com.