ihugunFagnaðarbænin (Welcoming Prayer), námskeið verður haldið í Guðríðarkirkju laugardaginn 16. janúar, 2016 frá kl. 09:00 til 17:00.

Hvað er Fagnaðarbæn?

Fagnaðarbæn er leið/aðferð til að samþykkja nærveru og verkan Guðs í viðbrögðum okkar gagnvart atburðum og aðstæðum í daglegu lífi.

Tilgangur Fagnaðarbænarinnar er að dýpka samband okkar við Guð með því að játast nærveru hans og verkan í hversdagslegum athöfnum okkar. Fagnaðarbænin hjálpar okkur til  að sleppa tökunum á ýmsu því sem íþyngir okkur og veitir okkur þannig aukið innra frelsi. Fagnaðarbænin er frábær aðferð til að styðja við umbreytinguna sem hefst í Kyrrðarbæninni (Centering prayer).

Umsjón með námskeiðinu hafa Dr. Grétar Halldór Gunnarsson og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknakandídat og leiðbeinendur Kyrrðarbænarinnar.

Námskeiðsgjald kr. 5.000,-. Innifalið: Námskeið, námskeiðsgögn og matur.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 861-0361 og/eða netfangi: coiceland@gmail.com