kyrrdarbaenarlogoNú í mars ætla Kyrrðarbænasamtökin að bjóða upp á kyrrðardaga í borg. Er þetta í þriðja sinn sem boðið er upp á kyrrðardaga í borg og að þessu sinni fara þeir fram í Grafarvogskirkju, dagana 16.-19.mars. Kyrrðardagar í borg virka sem þjálfun og stuðningur í að rækta kyrrð, íhugun og bæn í amstri hversdagsins. Iðkun kristilegrar íhugunar, Kyrrðarbænar, verður í forgrunni á þessum kyrrðardögum. Kyrrðarbænin (Centering prayer) er bænaiðkun sem fram fer í þögn, handan orða, hugsana og tilfinninga. Dagskrá Kyrrðardaganna hefst formlega á fimmtudeginum og lýkur svo með íhugunarguðsþjónustu á sunnudeginum. Kyrrðardagar í borg eru auðsóttari þeim sem lifa uppteknu fjölskyldulífi og kostnaður er minni en þegar farið er út úr bænum. Áætlaða dagskrá Kyrrðardaga í borg má finna hér að neðan sem og fleiri upplýsingar. Allir hjartanlega velkomnir.

Staðsetning: Grafarvogskirkja

Umsjónarmenn: Stjórn Kyrrðarbænasamtakanna: Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Erla Björg Káradóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Grétar Halldór Gunnarsson og Henning Emil Magnússon ásamt fleirum.

Þátttökugjald: 3500 krónur. (Innifalið er morgunkaffi og léttur hádegismatur á laugardegi).

Skráning: Vinsamlegast sendið nafn, kennitölu, símanúmer og tölvunetfang á netfangið kyrrdarbaen@gmail.com. Einnig er hægt að skrá sig í síma 661 7719.

Greiðsla: Vinsamlegast millifærið 3500 kr á:
Kt: 450613-1500
Bn: 0114-26-001513
Setjið Kyrrðarbæn í borg sem skýringu og sendið kvittun á kyrrdarbaen@gmail.com

Dagskrá:

Áætluð dagskrá:
Fimmtudagur 16. mars
17:30 Mæting og kynning.
17:50 Iðkun Kyrrðarbænarinnar 2×20 mín.
18.30 Heimferð.
Föstudagur 17. mars
17:30 Mæting
17.45 Iðkun Kyrrðarbænarinnar 2×30 mín.
18:45 Heimferð.
Laugardagur 18. mars
08:30 Mæting.
08:45 Iðkun Kyrrðarbænarinnar 2×30 mín.
10:00 Morgunkaffi í þögn.
10:15 Frjáls tími: útivera, lestur bóka, hvíld í þögn.
11:00 Biblíuleg íhugun (Lectio Divina) 30 mínútur.
12:15 Hádegisverður í þögn.
13:00 Iðkun Kyrrðarbænarinnar 2×30 mín.
14:15 Gagnræður.
15:00 Áætluð heimferð.
Sunnudagur 19. mars
10:00 Mæting.
10:10 Iðkun Kyrrðarbænarinnar 2×30 mín.
11:10 Brunch.
12:00 Gagnræður.
13.00 Íhugunarmessa.